4 brauðsneiðar án skorpu 4 msk vínedik 4 msk ólifuolía 4 stórir tómatar 1 græn paprika 1/2 gúrka 2 hvítlauksrif (ekki of stór) 1 lítill laukur Salt Vatn
Allt hráefnið fer í matkvörn (blender, mixer) og tætist þar til allt er orðið að safa.Súpan er síðan kæld vel áður en hún er borin fram. Þessi súpa er frá Andalúsíu á suður Spáni og er gerð að hætti innfæddra. Hafið í huga að hvítlaukurinn er ansi ráðandi í bragðinu og getur þvi komið of sterkur inn. Eins ræðst þykkt súpunnar af vatnsmagninu og þar geta auka tómatar spilað með.